is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6572

Titill: 
  • Atvinna með stuðningi á norðanverðu Snæfellsnesi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefni þetta er tíu eininga lokaverkefni til B.A gráðu í þroskaþjálfafræði við þroskaþjálfabraut Háskóla Íslands vorið 2010. Það er unnið af Hafrúnu Bylgju Guðmundsdóttir þroskaþjálfanema. Tilgangur verkefnisins er að leggja drög að uppbyggingu þjónustu við fatlaða á sviði atvinnumála og hæfingar á norðanverðu Snæfellsnesi með því markmiði að veita þjónustu í heimabyggð.
    Skoðaðar voru þjónustustofnanir sem veita fötluðum einstaklingum atvinnu tengda þjónustu með því markmiði að fá aukna innsýn í atvinnumál fatlaðra. Þær stofnanir sem skoðaðar voru Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi, Fjöliðjan, vinnu og hæfingarstöð á Akranesi, Gylfaflöt dagþjónusta, Ásgarður handverkstæði, Hæfingarstöðin Bjarkarás og skrifstofa atvinnu með stuðningi í Reykjavík. Tekin voru viðtöl við aðila sem koma að skipulagningu og útfærslu atvinnumála fatlaðra á norðanverðu Snæfellsnesi. Að gefnum ofangreindum þáttum eru lögð fram drög að þjónustu við fatlaða á sviði atvinnumála og hæfingar á norðanverðu Snæfellsnesi.

Samþykkt: 
  • 15.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6572


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B.A Lokaritgerð PDF.pdf257.5 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna