Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6591
Viðfangsefni verkefnisins er AMS, eða atvinna með stuðningi í Reykjavík þar sem sérstök áhersla er lögð á þátttöku geðfatlaðra á almennum vinnumarkaði. Ritgerðin er tvíþætt og byggist annars vegar á lagalegri-, sem og fræðilegri umfjöllun um rétt fatlaðs fólks til atvinnu og hins vegar um starfsemina AMS þar sem starfsemin í Reykjavík verður skoðuð sérstaklega og þá aðallega hvernig staðið er að málum geðfatlaðra hjá AMS í Reykjavík. Í þessum hluta verður einnig greint frá viðtölum þriggja stjórnenda sem eiga það sameiginlegt að vera með geðfatlaða einstaklinga í vinnu hjá sér. Markmið viðtalanna var að fá innsýn í viðhorf stjórnenda í ólíkum fyrirtækjum af því að hafa fólk með geðfötlun í vinnu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA-verkefni.pdf | 438.76 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Kápan.pdf | 109.8 kB | Opinn | Kápan | Skoða/Opna |