Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6595
Í verkefninu er fjallað um félagshæfnisögur, gerð þeirra og notkun. Lokaverkefnið er í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum er gerð grein fyrir þeim fræðilega grunni sem félagshæfnisögurnar eru byggðar á. Í síðari hlutanum eru hagnýtar leiðbeiningar um gerð og notkun félagshæfnisagna og dæmi um sögur sem hægt er að styðjast við og hugmyndir um hvernig hægt er að útfæra sögurnar á mismunandi hátt. Fræðsluefnið er hugsað sem leiðbeiningar fyrir foreldra, fagfólk og aðra sem vilja nýta sér félagshæfnisögur. Félagshæfnisögur eru persónulegar, stuttar sögur sem kenna börnum viðeigandi hegðun á jákvæðan hátt. Hægt er að grípa í félagshæfnisögur með lítilli fyrirhöfn og hver sem er getur notað aðferðina. Sagan dregur fram styrkleika barnsins og barnið er með hrósið skjalfest í sögunni. Með félagshæfnisögu er hægt að útskýra félagslegar aðstæður, lýsa athöfnum og brjóta þær niður í smærri skref. Þessi greinargerð er grunnurinn að því fræðsluefni sem fylgir og er lokaverkefni okkar í þroskaþjálfafræðum við Háskóla Íslands.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Félagshæfnisögur.pdf | 538.11 kB | Opinn | Greinargerð með fræðsluefni | Skoða/Opna | |
FORSÍÐA.pdf | 456.5 kB | Opinn | forsíða á fræðsluefni | Skoða/Opna | |
Fræðsluefni.pdf | 5.18 MB | Lokaður | Félagshæfnisögur: Leiðbeiningar um gerð og notkun |