is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6613

Titill: 
  • Mennt er máttur : reynsla nemenda af því að vera á starfsbrautum í framhaldsskólum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð, Mennt er máttur, reynsla nemenda af því að vera á starfsbraut í framhalds-skóla, er tíu eininga lokaritgerð til B.A-prófs í þroskaþjálfafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands vorið 2010. Ástæðan fyrir því að við völdum að skrifa um þetta efni er áhugi okkar á stöðu nemenda með þroskahömlun í framhaldskólum, hvaða reynslu þeir hefðu af námi á starfsbrautum og hvernig nemendur stæðu félagslega innan sem og utan skólans. Einnig höfðum við áhuga á að vita hvernig væri staðið að námsefnisgerð fyrir þennan nemendahóp, ásamt aðgenginu að því.
    Við gerðum við eigindlega rannsókn, og tókum viðtöl við sex nemendur á starfsbrautum haustið 2009 og í byrjun árs 2010, með það að markmiði að fá fram upp-lifun nemenda á námi og félagsþátttöku í skólanum. Einnig gerðum við könnun á starfs-brautum landsins til að athuga hvernig væri staðsem að námsefnisgerð og hvernig að-gengi að því væri háttað. Það gerðum við með því að senda spurningalista á starfsbrautir framhaldsskóla.

Samþykkt: 
  • 15.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6613


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B A lokalokaverkefni Aðalbjörg og Bjarghildur2007 kaflar.pdf313.81 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
BA_namsefni_merfinnst_level1m-no.pdf466.44 kBLokaðurFylgiskjölPDF
BA_namsefni_merfinnst_level2_m-no.pdf624.82 kBLokaðurFylgiskjölPDF
BA_namsefni_merfinnst_level3_m-no.pdf1.34 MBLokaðurFylgiskjölPDF