Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/662
Tilgangur þessarar B.Ed. ritgerðar er að kanna hvernig birtingarmynd lýðræðis kemur
fram hjá börnum í leik og starfi. Skoðaðar eru hugmyndir fræðimanna John Dewey og
Audrey Osler um lýðræði og stuttlega farið inn á kenningu fræðimannsins Piaget ásamt
fleirum í ljósi kynjafræðinnar.
Lýðræði er mikilvægur þáttur í leikskólastarfi og þar á að kenna börnum
lýðræðisleg vinnubrögð með því að hvetja börnin til þátttöku og frelsi til tjáningar.
Hugtakið lýðræði er vítt hugtak en hefur ákveðin kjarna sem unnið er með í leikskólum. Í
þessum kjarna felst meðal annars þátttaka barna í ákvörðunarferli leikskólans og að
barnið finni að það tilheyri hópnum. Leikskólakennarar eru börnunum fyrirmynd og þurfa
að huga vel að hvernig þeir skipuleggja starfið með lýðræðið í huga. Einnig verður fjallað
um félagslegan og sálfræðilegan mun á kynjunum. Kynntar verða helstu kenningar um
félagsmótun kynjanna og skýringar þeirra á því hvernig börn læra kynbundna hegðun.
Rannsóknir hafa sýnt að börn gjalda kynferðis síns í leikskólum og þjóðfélaginu öllu, því
komið er fram við þau eftir hinum kynbundnu staðalmyndum. Breytinga er þörf í
uppeldisgeiranum því taka verður mið að kynferði í uppeldisstarfi til að stuðla að jafnri
stöðu kynjanna í þjóðfélaginu. Þannig fáum við út í þjóðfélagið sjálfsörugga einstaklinga,
sem bera virðingu fyrir gagnstæðu kyni og standa jafnfætis í lífsbaráttunni, óháð kyni.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
efnisyfirlit1.pdf | 23.11 kB | Opinn | Uppeldi til - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
heimildaskra.pdf | 12.31 kB | Opinn | Uppeldi til - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
ritgerd.pdf | 129.59 kB | Lokaður | Uppeldi til - heild | ||
utdrattur.pdf | 4.71 kB | Opinn | Uppeldi til - útdráttur | Skoða/Opna |