is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6636

Titill: 
  • Handbók fyrir starfsfólk sumarnámskeiðs á vegum þekkingarhópsins Míns styrks
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta lokaverkefni til B.A. gráðu við þroskaþjálfabraut Háskóla Íslands er tvíþætt. Annars vegar er um að ræða handbók fyrir starfsfólk sumarnámskeiðs á vegum þekkingarhópsins Míns styrks en tilgangur hennar er að vera leiðandi rit fyrir starfsfólk og auðvelda því að skipuleggja námskeið fyrir unglinga á einhverfurófi. Hinsvegar er um að ræða greinargerð með handbókinni en hún er fræðileg dýpkun á efni hennar ásamt rökstuðningi fyrir þeim drögum sem hún byggir á.
    Ýmis sumarúrræði eru í boð fyrir unglinga á einhverfurófi en fá eru sérsniðin að þörfum þeirra. Lykilþáttur í þátttöku unglinganna er skipulagt umhverfi, stuðningur til félagslegrar þátttöku og þekking starfsfólks á þörfum þeirra. Unglingar á einhverfurófi glíma oft við vanhæfni í félagslegum samskiptum og eru fastheldnir á daglegar venjur. Þetta gerir það að verkum að þátttaka í tómstundastarfi getur reynst þeim erfið. Hægt er að stuðla að aukinni þátttöku með því að veita unglingunum viðeigandi stuðning en jafnframt þarf að hafa í huga að þeir geta upplifað sig sem fullgilda þátttakendur með því að takast á við óhefðbundin verkefni sem eru aðlöguð að þeirra þörfum.

Athugasemdir: 
  • Samstarfsverkefni þroskaþjálfabrautar
    Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
    og Umsjónarfélags einhverfra
Samþykkt: 
  • 18.10.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6636


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Handbók sumarnámskeiðs.pdf495.57 kBLokaðurHandbókPDF
Leikja og viðburðamappa.pdf2.19 MBLokaðurLeikja og viðburðamappaPDF
Greinagerð með handbók.pdf347.63 kBLokaðurGreinargerðPDF