Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6654
Verðmat á bönkum geta verið frábrugðin verðmati annarra fyrirtækja. Eðlismunur á starfsemi banka og annarra fyrirtækja er að mestu tilkominn vegna þriggja þátta. Bankar starfa í umhverfi sem er undir meira eftirliti og reglum en hefðbundin fyrirtæki, erfitt getur verið að finna vægi skulda á móti eigin fé og endurfjárfestingaþörf. Heimildaritið varpar ljósi á starfsemi banka og, hvernig efnahagsreikningar banka eru frábrugðnir efnahagsreikningum almennra fyrirtækja. Almenn regla virðist ríkja meðal fræðimanna um að við verðmat á
bönkum skuli meiri áhersla lögð á að finna verðmæti eigin fjár heldur en heildarverðmæti. Í heimildaritinu styðst höfundur við fræðilegar kenningar um verðmat á bönkum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni_Bsc_Mani_Eskur_1012775939.pdf | 2.57 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |