Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6661
Frá því að Mannréttindasáttmál Evrópu var fullgiltur hefur hugtakið „réttlát málsmeðferð“ haft mikil áhrif á íslenskt réttarfar. Hugtakið er afar víðtækt og tekur breytingum með ríkjandi sjónarmiðum af hverjum stað og tíma fyrir sig. Með gildistöku laga um meðferð sakamála nr. 88/2008 voru gerðar breytingar á skilyrðum þess að hægt sé að víkja ákærðum manni úr
þinghaldi sínu meðan skýrslutaka af vitni fer fram. Lagabreyting þessi vakti áhuga höfundar á því að kynna sér réttinn til þessa að vera viðstaddur þinghald í máli sínu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS_ThorhildurThordisard.pdf | 613.77 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |