Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6678
Í ritgerð þessari er fjallað um dómaframkvæmd Hæstaréttar frá árinu 1998 til ársins 2010 þegar kemur að ólögmætu brottnámi eða haldi á börnum skv. Haag-samningnum um einkaréttarleg
málefni varðandi brottflutning barna milli landa og lögum nr. 160/1995 um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl. Höfundur
mun varpa ljósi á þau lagaskilyrði sem gilda um svokölluð brottnámsmál á Íslandi. Mál af þessum toga eru alla jafna viðkvæm og vandmeðfarin þrátt fyrir að í íslenskum rétti séu að finna
skýr lagaákvæði, þar sem það er að miklu leyti í höndum dómara að túlka þessi lagaákvæði og meta hvert mál fyrir sig. Við slíka túlkun dómara togast gjarnan á milli túlkun laganna sjálfra og
sjónarmiðsins um hvað sé barninu fyrir bestu. Upphaf reglna á þessu sviði er fyrrgreindur Haag-samningurinn frá 25. október 1980 og á Íslandi voru sett fyrrgreind lög nr. 160/1995 um
viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl. til að fullgilda samninginn. Það eru 11. og 12. gr. laganna sem fjalla um afhendingu barns
skv. Haag-samningnum, 11. gr. fjallar um það hvenær afhenda skuli barn og 12. gr. fjallar um hvenær heimilt er að synja um afhendingu barns. Mikilvægt er að átta sig á að hér er um
heimildarákvæði að ræða sem þýðir að dómara er aldrei skylt að synja um afhendingu barns.
Meginreglan er sú að ef barn hefur verið numið á brott með þeim hætti sem 11. gr. laganna tilgreinir þá skal afhenda barnið.
Í ritgerðinni er leitast við að sýna þróun dómaframkvæmdar Hæstaréttar Íslands í brottnámsmálum og því eru teknir fyrir allir dómar Hæstaréttar sem fallið hafa í málum sem
þessum. Litið verður til þessara dóma til að sjá hvernig niðurstöður þeirra hafa verið, hvort afhenda skuli barn eða ekki og á hverju sú niðurstaða byggist.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
ML ritgerð - Halla Björk Erlendsdóttir - 2605815549.pdf | 625.1 kB | Lokaður | Heildartexti |