is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/670

Titill: 
  • Hvað er málið? : mikilvægi tungumáls í leikskólastarfi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.ed. gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hér
    er skoðað hvernig tungumál barna þróast og hvort vinna þurfi markvisst með móðurmál
    og orðaforða í leikskóla. Einnig er skoðað hvaða kennsluaðferðum kennarar gætu beitt til
    þess að nám verði ekki íþyngjandi fyrir börn á þessu fyrsta skólastigi.
    Í leikskóla er stutt við alhliða þroska barna og leitast við að auka hann eins og kostur er,
    þar á meðal málþroskann. Leikurinn er í fyrirrúmi í leikskólastarfi og ætti efling
    málþroska barna að vera rauður þráður í því starfi. Móðurmálið er undirstaða alls náms
    barna. Málið nota þau til boðskipta og tjá þannig hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir.
    Ýmislegt bendir til þess að á síðustu árum hafi orðaforði barna og skilningur á hugtökum
    og orðasamböndum farið minnkandi. Mikilvægt er því að efla málþroska barna og auka
    orðaforða þeirra og málskilning. Niðurstaða þessa verkefnis er sú að þetta sé best að gera
    með markvissum hætti í gegnum leik og skapandi starf. Þannig ná börn góðu valdi á
    tungumálinu og eru betur í stakk búin að takast á við formlegt nám.
    Leikur er aðal náms- og þroskaleið barna. Í gegnum leikinn öðlast þau skilning á
    umhverfi sínu og læra að vinna úr eigin reynslu. Börn þurfa því fjölbreytilegt og lærdóms
    hvetjandi leikumhverfi þar sem leikurinn markast af þroska þeirra, bakgrunni og
    uppeldisumhverfi.
    Í leik læra börn nýja færni, tjá tilfinningar sínar og fá útrás fyrir þær. Börn læra með því
    að takast á við hlutina, nýta reynslu sína og nám sitt byggja þau á einhverju sem þau
    þekkja. Það skiptir því miklu máli að í námi barna sé samfella og sveigjanleiki og að það
    sé alltaf gengið út frá því hvað sé barninu fyrir bestu.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/670


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð.pdf175.03 kBTakmarkaðurHvað er málið - heildPDF
Lokaritgerð_Efnisyfirlit.pdf17.87 kBOpinnHvað er málið - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Lokaritgerð_Heimildaskrá.pdf24.83 kBOpinnHvað er málið - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Lokaritgerð_Útdráttur.pdf12.45 kBOpinnHvað er málið - útdrátturPDFSkoða/Opna