is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > ML Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6891

Titill: 
  • Réttur til heilsu fyrir fólk með fatlanir
  • Titill er á ensku The Right to Health for Persons with Disabilities
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi eru oft talin leggja jákvæðar skyldur á herðar ríkja. Jákvæðar skyldur hafa verið útskýrðar á þann veg að ríki þurfi að grípa til aðgerða, sem oft á tíðum geta verið kostnaðarsamar, svo einstaklingar geti notið réttinda sinna. Efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi verða því innleidd með stighækkandi framkvæmd. Ríkjum ber þó að veita einstaklingum ákveðin lágmarks-kjarna réttinda sem og að virða, vernda og uppfylla réttindi þeirra. Rétturinn til heilsu er talinn til efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda. Réttinn til heilsu skal ekki skilja á þann veg að hann tryggi einstaklingum rétt til þess að vera heilbrigði. Skyldur ríkja snúast fremur að því að skapa aðstæður sem stuðlar að heilsu fólks. Þó öllum sé tryggður réttur til heilsu taldi allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna nauðsynlegt að tryggja sérstaklega fólki með fatlanir rétt til heilsu. það var gert með samningnum um réttindi fólks með fötlun sem tók gildi þann 13. desember 2006. Til að tryggja fyllilega að fólk með fatlanir réttinda til jafns við aðra er afnám mismununar og jafnrétti aðalgrundvöllur samningsins. Samningnum var ekki ætlað að skapa ný réttindi heldur að aðlaga þau réttindi sem fyrir voru að fólki með fatlanir og þörfum þeirra. Samningurinn kveður sérstaklega á að fólk með fatlanir sé tryggður réttur til heilsu. Er það markmið þessara ritgerðar að svara þeirri spurningu hver sé réttur fólk með fatlanir til heilsu og hvort samningurinn veit betri rétt eða leggi ríkari skyldur á ríki til að tryggja þann rétt. Með hliðsjón af undirbúningsgögnum samningsins er komist að þeirri niðurstöðu að réttur til heilsu fyrir fólk með fatlanir er sami og aðrir njóta. Samningurinn leggur þó ríkari skyldur til að fötlunartengdu eiginleikar samningsins missi ekki gildi sitt.

  • Útdráttur er á ensku

    Economical, social and cultural rights are often considered to confer positive obligations on states. Positive obligations have been denoted as obligations conferred states to take certain actions, often costly, to ensure effective enjoyment of fundamental rights. The realization for economical, social and cultural rights must therefore be progressive. States must however meet minimum core obligations as well as the obligation to respect, protect and fulfill fundamental right. The right to health is considered to be an economical, social and cultural right. The right to health should not be understood so that it entails the right for an individual to be healthy but rather so that imposes certain obligations on states to create circumstance that promote public health. All though all are ensured the right to health, the United Nations General Assembly considered it necessary to ensure that persons with disabilities enjoy the right to health to the same degree as all others. The Convention on the Rights of Persons with Disabilities thus entered into force on 13 December 2006. Equal rights and non-discrimination are the underlying principles of the Convention to ensure that persons with disabilities will in fact enjoy the rights entailed in it. The Convention was not meant to create new rights but rather to inline the rights of persons with disabilities to the rights of others and adapt it to their needs. The right to health is specially protected in the convention. The purpose of this thesis is to answer the question on to what extent people with disabilities enjoy the right to health and whether the Convention has provided enhanced protection or put further obligations on states to ensure this right. Taking into consideration the drafting history of the Convention, the conclusion is that the right to health for persons with disabilities is parallel to the rights of other persons.

Samþykkt: 
  • 4.11.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6891


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Elinborg-Jonsdottir_ML-2010.pdf633.08 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna