Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6893
Eftirfarandi ritgerð er lokaverkefni til BA.- prófs við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni er fjallað um jafnræði kynja í ástinni og er byggt á kenningum Simone de Beauvoir sem hún kemur á framfæri í bók sinni Hinu kyninu. Frá upphafi tíma hefur hlutverk kynjanna verið ólíkt og í Frakklandi árið 1949 þegar Hitt kynið var skrifað nutu konur ekki mikilla réttinda og takmarkaðs frelsis í ástarsamböndum, og þá helst í hjónaböndum. Beauvoir gagnrýndi ástarsambönd og jafnræði kynjanna í þeim við skilyrði karlaveldis, og setti í framhaldi af því fram kenningu um möguleika þess að kynin búi við jafnt frelsi í ástinni. Beauvoir var á því máli að jafnræði milli kynjanna í ástinni væri mögulegt og þvertók fyrir kenningar sem gáfu til kynna að ástin væri barátta milli einstaklinga þar sem annar aðilinn ræður en hinn aðilinn er undirskipaður og í hlutverki „hins“. Til að skýra hvernig jafnræði í ástinni sé mögulegt verða hugmyndir Beauvoir lagðar fram og gagnrýndar, og kannað verður hvort þær lýsi eðli ástarinnar við aðstæður sem eru ekki jafn hefðbundnar og aðstæður voru á tíma Beauvoir og hvort þær eigi enn við á einhvern hátt í samtímanum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Simone de Beauvoir um jafnræði og ást í hinu kyninu.pdf | 313.79 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |