is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BA Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6902

Titill: 
  • Efnahagsleg nálgun við úrlausn samkeppnismála
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í verkefni því sem hér fer á eftir er áhersla lögð á umfjöllun um hina efnahagslegu nálgun við úrlausn samkeppnismála. Ritgerðin skiptist í meginatriðum í þrjá þætti; umfjöllun um 101. gr. Rómarsáttmála, 102. gr. og að lokum um samrunamál. Umfjöllun 102. gr. Rs. er skipt í tvo þætti, annars vegar verðtengdar aðferðir og hins vegar aðferðir ótengdar verði. Sérstök áhersla er lögð á umfjöllun um samtvinnun, gerð einkakaupasamninga og afslátta af hálfu markaðsráðandi aðila. Auk þess eru reifaðar nýjar hugmyndir við nálgun samrunamála og þær bornar saman við eldri aðferðir. Farið er yfir markmið með hinum nýju áherslum og skoðað hvort þær hafi skilað raunverulegum árangri við mat á lögmæti samruna. Einnig eru reifaðir nýlegir úrskurðir er sýna vilja samkeppnisyfirvalda til að breyta um stefnu í átt til aukinna efnahagslegra greininga. Fordæmisréttur við úrlausn samrunamála og samkeppnismála samkvæmt 101. og 102. gr. verður skoðaður með hliðsjón af breyttum áherslum framkvæmdastjórnarinnar með tilliti til leiðbein ngarreglna framkvæmdastjórnarinnar við beitingu 102. gr. Rs. og samrunareglugerðarinnar frá 2004. Farið er yfir þá nálgun sem samkeppnisyfirvöld hafa tamið sér við mat á samkeppnislega skaðlegri háttsemi fyrirtækja og þær bornar saman við tillögur framkvæmdastjórnarinnar um breyttar áherslur við úrlausn samkeppnismála. Að lokum eru dregnar saman helstu niðurstöður og farið yfir þá kosti og galla sem hin efnahagslega nálgun hefur fram yfir þá formlegu.

Samþykkt: 
  • 8.11.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6902


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Helga-Bjork-Helgadottir-Valberg_BA-2010.pdf470.06 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna