is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6941

Titill: 
  • Mannréttindi og menntun : mannréttindakennsla í grunnskólum?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Hugmyndir um manngildi og réttindi einstaklinga hafa verið uppi allt frá fornöld. Frá þeim tíma hafa fræðimenn þó deilt um hvert inntak þeirra sé í raun. Mannréttindahugtakið eins og það þekkist í dag byggir á fjölhyggju slíkra kenninga, en í flestum mannréttindasáttmálum sem nú eru í gildi er litið svo á að mannréttindi séu meðfædd grunnréttindi hverrar manneskju. Þrátt fyrir þau tíðkast mannréttindabrot um allan heim. Til að sporna við slíkum brotum hafa alþjóðasamtök lagt áherslu á að einstaklingar þekki rétt sinn og skyldur. Umræðan um mannréttindi og mannréttindakennslu hefur farið ört vaxandi bæði hérlendis og erlendis undanfarin ár, en Sameinuðu þjóðirnar tileinkuðu áratugnum 1994 - 2005 slíkri kennslu. Ísland hefur fullgilt Barnásáttmála Sameinuðu þjóðanna og undirritað samning um mannréttindakennslu. Þrátt fyrir þetta sýna rannsóknir að mannréttindakennsla hefur sjaldan verið skipulega á dagskrá íslenskra grunnskóla.

Samþykkt: 
  • 19.11.2010
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/6941


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Skemman.pdf699.72 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna