Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/6946
Hér á eftir fer greinargerð sem fylgir myndbandinu Ísland í kvöld. Myndbandið á að þjóna því hlutverki að vera miðlafræðsla og má einnig segja að viðfangsefni verkefnisins sé miðlalæsi eða, með öðrum orðum, færnin til að greina, ná í, meta og búa til miðlaskilaboð. Markmið miðlafræðslu er þannig að öðlast færnina sem felst í miðlalæsi. Miðlalæsi er nauðsynlegt á þeim tímum sem við lifum í dag því flæði miðlaskilaboða er gríðarlegt og áhrifin geta verið mikil. Í ljósi þess er því mikilvægt að fræða börn og unglinga um miðla. Í sögulegu samhengi er í raun sláandi að miðlafræðsla skuli ekki hafa verið kennd á Íslandi með formlegum hætti, þrátt fyrir að slík fræðsla hafi verið til staðar á öðrum Norðurlöndum í áratugi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð-miðlalæsi.pdf | 265.13 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Íslandíkvöld.mpg | 715.74 MB | Opinn | Mynddiskur | MPEG Video | Skoða/Opna |