is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/695

Titill: 
  • Elska skalt þú náungann : áhrif trúarlegrar auðlegðar á vímuefnaneyslu íslenskra ungmenna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Áhugi fræðimanna á trú hefur aukist í gegnum tíðina og hafa tengsl hennar við félagslega
    auðlegð verið mikið skoðuð. Þar sem trúarleg auðlegð er eitt form félagslegrar auðlegar, sem
    einstaklingar fá m.a. í gegnum kirkjuástundun, var markmið rannsóknarinnar að skoða hvaða
    áhrif trúarleg auðlegð hefði á vímuefnaneyslu íslenskra unglinga. Trú var skoðuð sem trúarleg
    auðlegð og var henni skipt niður í trúarlega félagsmótun og trúarlega hegðun. Unnið var úr
    gögnum sem fengin voru úr ESPAD rannsókninni frá árinu 2003. Þátttakendur voru
    nemendur í níunda og tíunda bekk grunnskólum á Íslandi. Alls voru 3.543 þátttakendur, fjöldi
    stelpna var 1.678 og strákar 1.836. Þrjár tilgátur voru settar fram. Tilgáta eitt var að stúlkur
    væru trúaðri en strákar. Tilgáta tvö var sú að stúlkur hefðu meiri trúarlega auðlegð en strákar
    og þriðja tilgátan var sú að stúlkur neyttu minni vímuefna en strákar. Niðurstöður studdu
    tilgátu eitt, tvö og að hluta til þrjú. En í ljós kom að kyn hefði ekki áhrif á reykingar og
    hassneyslu en stúlkur virtust drekka minna en strákar. Þegar skoðuð voru áhrif trúarlegrar
    auðlegðar á vímuefnaneyslu unglinganna kom í ljós marktækur munur. Þeir sem voru með
    litla trúarlega auðlegð neyttu marktækt meiri vímuefna en þeir sem mældust með háa
    félagslega auðlegð.

Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/695


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit.pdf106.92 kBOpinnElska skalt - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildir.pdf119.21 kBOpinnElska skalt - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Ritgerðin.pdf339.93 kBOpinnElska skalt - heildPDFSkoða/Opna
Útdráttur.pdf80.48 kBOpinnElska skalt - útdrátturPDFSkoða/Opna
Viðaukar.pdf206.89 kBOpinnElska skalt - viðaukarPDFSkoða/Opna