Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/696
Þessi rannsókn skoðar viðhorf til brota í íshokkí ásamt því að skoða hvað hafi áhrif á
árásarhneigð. Þátttakendur voru 82 strákar úr 4., 3. og 2. flokk frá þeim þremur skautafélögum
sem eru á Íslandi. Notaður var spurningalisti sem skiptist í þrjá hluta. Fyrsti hlutinn tók til
almennra upplýsinga og viðhorfa til brota. Annar hluti var þýðing á TEOSQ listanum sem
skoðaði hvort leikmenn voru með sjálfmiðuð- eða verkefnamiðuð-markmið. Þriðji hlutinn var
þýðing á JAMBISQ listanum sem skoðar hvað hefur áhrif á árásarhneigð leikmanna. Við
útreikninga var miðað við marktektarmörkin <0,05. Niðurstöður sýndu að skoðanir liðsfélaga
og þjálfara hafa áhrif á ákvörðun leikmanna um að sýna árásarhneigð. Enginn munur fannst á
háum og lágum sjálfmiðuðum-markmiðuð og viðhorfi til grófra brota. Sömu niðurstöður mátti
sjá þegar skoðaður var munur á milli hárra og lágra verkefnamiðaðra-markmiða og viðhorfa
til grófra brota. Einnig voru þeir sem spila upp fyrir sig ekki líklegri en þeir sem spila ekki
upp fyrir sig, til þess að nota tæknileg brot. Þessar niðurstöður benda til þess að viðhorf
leikmanna til grófra brota sé almennt neikvætt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Árásarhneigð í íshokkí.pdf | 510.22 kB | Takmarkaður | Árás íshokkí - heild | ||
Efnisyfirlit.pdf | 48.6 kB | Opinn | Árás íshokkí - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Heimildaskrá.pdf | 83.59 kB | Opinn | Árás íshokkí - heimildarskrá | Skoða/Opna | |
Útdráttur.pdf | 49.39 kB | Opinn | Árás íshokkí - útdráttur | Skoða/Opna |