Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7060
Markmið þessa verkefnis var að skoða fuglalíf og gróður á jörðinni Arnarbæli í Ölfusi, einnig að skoða nokkra þætti úr landbúnaðarsögu jarðarinnar. Stærstur hluti Arnarbælis tilheyrir Ölfusforum sem er lýst sem einu stórbrotnasta votlendissvæði á Íslandi, þær eru afar fjölbreyttar að fuglafánu og gróðurfari. Hér á landi er votlendi áberandi í landslagi, talið er að votlendi sé um þriðjungur gróins lands á Íslandi. Votlendi er mjög mikilvægt fyrir íslenska fugla. Jafnan verpa um 70-80 fuglategundir á Íslandi og stór hluti þeirra nýtir votlendi einhvern hluta lífsskeiðs síns. Fuglalíf í Arnarbæli reyndist vera dæmigert fyrir frjósöm flæðiengi og þurra árbakka.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LiljaJ_BS.pdf | 1.04 MB | Opinn | Skoða/Opna |