Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/708
Rannsóknin var gerð til að meta hvort munur væri á viðhorfi nemenda til náms eftir búsetu þeirra. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 86 nemendur í 9. bekk í grunnskólum á Ísafirði og í Kópavogi. Rannsóknin var framkvæmd með fyrirlagningu spurningalista. Staðhæfingar, sem meta áttu atriði er tengdust viðhorfi nemenda til náms, voru þáttagreindar. Þáttagreiningin skilaði fimm þáttum, þættirnir voru; metnaður, værukær, innri áhugahvöt, ytri áhugahvöt og sjálfsmynd. Helstu niðurstöður voru þær að ekki var marktækur munur á milli þátttakenda eftir búsetu þeirra í flestum þeirra þátta sem athugaðir voru. Þó mældist marktækur munur á metnaði nemenda, en nemendur í Kópavogi höfðu meiri metnað til náms en nemendur á Ísafirði. Draga má þá ályktun út frá niðurstöðum rannsóknarinnar að búseta hafi ekki lykiláhrif á viðhorf nemenda til náms.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð.pdf | 1.38 MB | Lokaður | Greinargerð | ||
Fylgiskjöl.pdf | 186.71 kB | Lokaður | Fylgiskjöl | ||
Fylgiskjöl2.pdf | 51.74 kB | Lokaður | Fylgiskjöl |