Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7225
Í verkefni þessu er skoðaður þróunarferill Stöðlakots í Þingholtunum sem áður var hjáleiga Reykjavíkur og notað til þess borgarformfræðikenning Conzen (1960) um
þróunarferil borgarlóðar (e. the burgage cycle). Þróun byggðarinnar á svæðinu er skoðuð frá því að byggð myndast fram til dagsins í dag. Það er gert með því að skoða sögulegar heimildir, kort, myndir og teikningar en einnig með vettvangsskoðunum.
Rýnt er í gömul kort af svæðinu ,frá mismunandi tímum og þau borin saman til að sjá hvernig byggðin breytist og þróast í gegnum tíðina. Búið er til sniðmát með teikningum, kortum og myndum til að greina þróun byggðarinnar og þær upplýsingar
notaðar til að teikna þróunarferil lóðarinnar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSritgerðAldísA2010.pdf | 17.53 MB | Opinn | Skoða/Opna |