is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7256

Titill: 
  • Börnin í borginni: Umboðsvandi í daggæslu barna í Reykjavík
  • Titill er á ensku Agency Problems in Daycare in Reykjavik
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Grundvallarþáttur í samræmingu í fjölskyldu- og atvinnulífi íslenskra foreldra er aðgangur að góðri daggæslu. Dagvistunarmál eru meðal lögbundinna verkefna sveitarfélaga. Í Reykjavík er daggæsla barna í heimahúsum, leikskóli og frístundaheimili dagvistunarúrræði sem eru til staðar frá því að fæðingar- og foreldraorlofi lýkur til 10 ára aldurs barna.
    Leitast var við að svara eftirfarandi rannsóknarspurningum, hver er umboðskeðjan í daggæslu barna í Reykjavík, byggt á umboðskenningunum? Hvaða vandi skapast af keðjunni og hvað gerir borgin til að lágmarka umboðstap?
    Tvær meginleiðir voru farnar í öflun gagna. Annars vegar voru notuð fyrirliggjandi gögn löggjafar- og framkvæmdarvalds og Reykjavíkurborgar. Hins vegar var eigindleg rannsóknaraðferð með viðtölum við dagforeldra, leikskólakennara og verkefnastjóra frístundaheimila.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýna að umboðskeðjur daggæslu barna í heimahúsum, leikskóla og frístundaheimila í Reykjavík eru mismunandi með tilliti til lengdar og valddreifingar. Umboðsvandi á sér stað sem hægt er að rekja til umboðskeðjunnar.

  • Útdráttur er á ensku

    A fundamental factor in balancing the family life and professional life of Icelandic parents is the availability of good daycare. Daycare is among the issues of the municipalities that are bound by law. In Reykjavik, daycare options include daycare for the youngest operated at the agents‘ homes, kindergarten and a part time daycare for grade school children after classes. All of which are available for parents from the day maternal and/or paternal leave ends until the children reach the age of ten, respectively.
    The goal was to answer the following question: How is the agency chain in daycare service in Reykjavik constructed, based on agency theories? What problems arise from the chain and what is the City doing to minimize agency loss?
    Source material was gathered in two different ways, with usage of existing material and data from both the legislative as well as the executive institutions of government and the City of Reykjavík, and qualitative research with interviews with daycare employees and directors from all stages of the service.
    The research showed that the agency chains in each of the daycare service‘s stages is different with regards to length and distribution of power. An agency problem exists and can be traced back to the agency chain.

Samþykkt: 
  • 13.1.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7256


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Börnin í borginni.pdf1.15 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna