is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7259

Titill: 
  • "Svo dettur maður bara inn í einhvern straum." Um áhrifavalda og stýrandi orðræðu í menningu raun- og tæknivísindagreina H.Í.
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsóknin beindist að menningu og ríkjandi orðræðu innan eðlisfræði, rafmagns- og tölvuverkfræði, stærðfræði og tölvunarfræði í Háskóla Íslands. Fræðafólk hérlendis sem og erlendis hefur beint sjónum að hugsanlegri orsök lágs hlutfalls kvenna innan greinanna. Rannsókninni er ætlað að vera innlegg í þá umræðu. Tilgangurinn var að varpa ljósi á félagslega áhrifaþætti í menningu greinanna. Rannsóknin var eigindleg viðtalsrannsókn, unnin í anda etnógrafíu félagslegra tengsla og byggði á viðtölum við 10 kvenstúdenta. Í ljós kom að fjölbreytt orðræða einkennir menningu deildanna. Tvíhyggjusýn á vísindi og virðingarröð vísindagreina var áberandi. Slík orðræða jaðarsetur félags- og hugvísindatengt nám og stillir raunvísindagreinum upp í virðingarröð þar sem stærðfræðin trónir á toppinum. Greinarnar eiga það sammerkt að karlar eru í meirihluta nemenda og að konur þurfa að aðlagast karllægum viðmiðum. Til að komast inn í félagslíf verða nemendur að ganga í takt við viðteknar hefðir, jafnvel sætta sig við grófan húmor. Þetta getur reynst hindrun fyrir þau sem ekki samsama sig ríkjandi karllægri ímynd. Einstaklingshyggja litar umræður um jafnréttismál og viðhorf til jafnréttisaðgerða einkennast af tortryggni og þeirri skoðun að í þeim felist misrétti gagnvart körlum. Ofangreind valdatengsl hafa áhrif á samskipti nemenda, námsval og líðan í námi. Ríkjandi hugmyndir endurspeglast jafnframt í tilhögun náms.

Styrktaraðili: 
  • Jafnréttisnefnd Háskóla Íslands
Samþykkt: 
  • 13.1.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7259


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
HSG_MA.pdf623.94 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna