is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7266

Titill: 
  • Ungmenni á Hálsinum: Saga félagsmiðstöðva, æskulýðs- og tómstundamála í Kópavogi
  • Titill er á ensku The history of leisure and youth services in Kópavogur
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð verður saga æskulýðs- og tómstundamála rakin með áherslu á unglinga. Einnig verður saga félagsmiðstöðva í Kópavogi sögð. Sagt verður frá lykilþáttum í byggðarlagsþróun Kópavogs og hvernig sú þróun hafði áhrif á stefnu bæjaryfirvalda hvað varðaði málefni unglinga. Skólasaga Kópavogs fléttast af einhverju leiti inn í frásögnina. Sagt verður frá stofnun Kópavogsskóla, fyrsta barnaskóla bæjarins, ásamt því að gert verður grein fyrir þætti skólanna í uppbyggingu æskulýðs- og tómstundastarfs í bænum. Fjallað verður um æskulýðsráð, félagsmálastofnun og tómstundaráð Kópavogs til þess að komast að þætti þeirra í atburðarrás sem leiddi til stofnunar félagsmiðstöðva í öllum grunnskólum Kópavogs. Framboð á tómstunda- og æskulýðsstarfsemi frá árdögum Kópavogs fram til dagsins í dag verður einnig skoðað. Sagt verður frá þeim úrræðum sem stóðu unglingum til boða áður en félagsmiðstöðvarnar komu til. Fjallað verður um íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs og sagt frá hvernig rekstur félagsmiðstöðvanna færðist undan stjórn skólanna til ÍTK. Kostir og gallar þessa breytinga verða metnir.

Samþykkt: 
  • 13.1.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7266


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ritgerð final.pdf233.22 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna