Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7280
Lokaverkefni til BA prófs í Bókasafns- og upplýsingafræði við Háskóla Íslands. Verkefnið fjallar um Magnús Pálsson myndlistarmann. Það felur í sér að safna saman öllum heimildum sem fjalla um listamanninn á árunum 1957 - 2010 í einn gagnagrunn. Heimildirnar eru í formi dagblaðagreina, bóka, tímaritsgreina, sýningarskráa auk efnis úr útvarpi og sjónvarpi. Þær eru skráðar, lyklaðar og hverri heimild er gefin umsögn.
Verkefnið skiptist í inngang og fjórar ritaskrár. Efni ritaskránna skiptist svo: Ritaskrá I inniheldur greinar úr dagblöðum, ritaskrá II inniheldur bækur, tímaritsgreinar og annað útgefið efni, ritaskrá III inniheldur efni úr útvarpi og sjónvarpi og ritaskrá IV inniheldur sýningarskrár. Á eftir ritaskrám kemur skrá yfir sýningar, höfundaskrá, titlaskrá, efnisorðaskrá og að lokum nafnaskrá.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forsíða.pdf | 36.28 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Gagnagrunnur um listferil Magnúsar Pálssonar.pdf | 499.65 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna |