Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/728
Fjölmiðlar eru orðnir gríðarstór hluti af lífi nútímamannsins og stétt fjölmiðlamanna er sú stétt
sem hefur hvað mest áhrif á hinn almenna borgara með beinum eða óbeinum hætti. Þar sem
starf fjölmiðlanna er jafn mikilvægt og raun ber vitni er eðlilegt að um þá gildi ákveðnar
reglur, bæði til að tryggja viðgang þeirra og einnig til að þeir sinni störfum sínum á viðeigandi
hátt. Mörg blaðamannasamtök, staðbundin jafnt sem alþjóðleg, sem og einstakir miðlar komið
sér upp skráðum siðareglum til að leiðbeina sínu fólki um vandrataða vegi faglegrar
fréttamennsku.
Hér verður leitast við að varpa ljósi á þær siða- og starfsreglur sem íslenskir fjölmiðlar
starfa eftir í dag og leitað svara við þeim spurningum hvort á þeim sé merkjanlegur munur og
hvernig reglurnar hafi áhrif á starf fjölmiðlanna. Það verður gert með því að taka fyrir nokkur
mál sem oft koma upp í starfi fjölmiðla, skoða hvort og þá hvernig tekið er á þeim í
starfsreglum miðlanna og ákvæði reglnanna að lokum tengd við raunveruleikann með dæmum
úr starfi þeirra.
Vinnureglur íslenskra miðla eru nokkuð svipaðar þó svo að greina megi ákveðinn
áherslumun. Ríkisútvarpið hefur á að skipa langýtarlegustu og reglunum enda er hefðin fyrir
reglum um fréttaflutning langsterkust þar. Starfsreglur 365 miðla, Morgunblaðsins og
Fréttablaðsins eru að sama skapi í flestum tilfellum svipaðar og nokkuð strangar. Þrátt fyrir að
ritstjórnarstefna DV hafi breyst tölvuvert þá er blaðið ennþá nokkuð frábrugðið hinum
miðlunum, sérstaklega þegar tekið er mið af nafn- og myndbirtingarstefnu blaðsins. Ennþá er
stefna blaðsins í þeim málum harðari en stefna hinna miðlanna þó svo að hún hafi mildast til
muna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Efnisyfirlit.pdf | 52.16 kB | Opinn | Aðgát - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
heimildaskrá.pdf | 75.41 kB | Opinn | Aðgát - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Lokaritgerð.pdf | 458.31 kB | Opinn | Aðgát - heild | Skoða/Opna | |
Útdráttur.pdf | 37.36 kB | Opinn | Aðgát - útdráttur | Skoða/Opna |