is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/732

Titill: 
  • Staða tímarita á íslenskum fjölmiðlamarkaði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Í þessu lokaverkefni er leitað svara við því hver staða „sölutímarita“ sé á íslenskum
    fjölmiðlamarkaði. þar er átt við þau tímarit sem gefin eru út á almennum markaði af
    fyrirtækjum með arðsemiskröfu að leiðarljósi, þ.e. með því að selja í þeim auglýsingar
    og/eða selja þau lesendum. Í ritgerðinni er litið yfir sögu útgáfustarfseminnar frá
    upphafi til vorra daga. Einnig er farið yfir fjölmiðlakannanir sem sýna þróun útgáfu
    tímarita gagnvart öðrum miðlum á markaðinum síðustu tvo áratugina. þá er
    rekstrarumhverfi tímarita kannað með viðtölum við nokkra aðila sem komið hafa að
    tímaritaútgáfu á Íslandi. Stóraukið framboð á annars konar fjölmiðlun á Íslandi frá því
    að fyrsta tímaritið kom út hefur knúið tímarit til aukinnar sérhæfingar. Í stað þess að
    byggja á almennum efnistökum og löngu ritmáli, beinast þau nú til dags að
    áhugasviðum tiltekinna hópa með beinum hætti með áherslu á myndbirtingar. Rætt
    var við fimm einstaklinga með reynslu af útgáfu tímarita og töldu þeir smæð
    markaðarins á Íslandi, samkeppni annarra miðla, háan framleiðslukostnað og óstöðuga
    tekjustofna vera þá helstu þætti sem geri rekstrarumhverfi tímarita erfitt. Auk þess
    virðist lestur tímarita hafa minnkað verulega síðustu tvo áratugina. Þrátt fyrir það
    virðist eftirspurn fyrir því formi og efni sem tímarit hafa upp á að bjóða vera næg, þótt
    smæð markaðarins geri það að verkum að takmarkað magn af sambærilegu efni beri
    sig hverju sinni. Í ljósi þess helst útgáfa tímarita óbreytt svo lengi sem eftirspurn er
    fyrir hendi og tekjur af útgáfu þeirra eru meiri en kostnaður. Þó verður að huga að því
    hvað gerist fyrir starfsemina þegar til lengri tíma er litiþ, meþ hliþsjón af aukinni
    netnotkun yngra fólks og minnkandi lestri.

Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/732


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
efnisyfirlit.pdf30.98 kBOpinnTímarit - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
heimildaskra.pdf29.15 kBOpinnTímarit - heimildaskráPDFSkoða/Opna
Robert_ritgerd.pdf.pdf3.47 MBOpinnTímarit - heildPDFSkoða/Opna
utdrattur.pdf24.2 kBOpinnTímarit - útdrátturPDFSkoða/Opna