Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/736
Með umræðu sem verið hefur í þjóðfélaginu að undanförnu um
uppbyggingu álvera hafa komið fram tvær öndverðar skoðanir. Að störf í álverum
séu hátæknistörf sem krefjist hás menntunarstigs, en hinsvegar að verið sé að
taka gamaldags iðnað fram yfir hátækniiðnað og sprotafyrirtæki með því að
byggja álver á Íslandi. Í þessari rannsókn veða breytingar á menntunarstigi
vinnumarkaðarins á Húsavíkursvæðinu skoðaðar ef fyrirhugað álver á Bakka við
Húsavík verði byggt. Skoðað verður menntunarstig vinnumarkaðarins eins og
það er í dag, greint frá fyrirhugðu menntunarstigi starfa innan álvers og í
afleiddum störfum sem áætlað er að muni fylgja álveri. Að lokum verður nýtt
menntunarstig Húsavíkursvæðisins reiknað út frá fyrirliggjandi gögnum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA_menntunarstig_loka.pdf | 147.53 kB | Takmarkaður | Breytingar - heild | ||
BA_menntunarstig_loka_Efnisyfirlit.pdf | 16.98 kB | Opinn | Breytingar - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
BA_menntunarstig_loka_Heimildir.pdf | 27.28 kB | Opinn | Breytingar - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
BA_menntunarstig_loka_Utdrattur.pdf | 9.11 kB | Opinn | Breytingar - útdráttur | Skoða/Opna |