is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > B.A. verkefni - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7382

Titill: 
  • Pólitísk framboð Snorra Ásmundssonar. Greining og túlkun á framboðunum með tilliti til viðtökusögu almennings og fræðimanna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um listamanninn Snorra Ásmundsson. Snorri bauð sig fram í formannskjöri Sjálfstæðisflokks, stofnaði eigin stjórnmálaflokk til borgarstjórnarkosninga og bauð sig fram í embætti til forseta Íslands. Þessi framboð sem túlkuð eru í ritgerðinni sem gjörningar þykja kjörið dæmi um list sem nær út fyrir hefðbundið rými listarinnar. Snorri nær einnig að koma listinni til almennings sem hefði ef til vill ekki kannast við listamanninn né verk hans.
    Í fyrsta hluta ritgerðarinnar er listaferill Snorra skoðaður og þær sýningar eða verk tekin fyrir sem fá hvað mesta athygli í fjölmiðlum. Þar næst er farið yfir framboð Snorra. Þau er túlkuð sem gjörningar og það rökstutt hvers vegna. Einnig er farið yfir viðtökur við framboðunum hjá almenningi, fræðimönnum, gagnrýnendum og listamönnum. Í lok ritgerðarinnar er Snorri settur í samhengi við stefnur og strauma listasögunnar sem og við Besta flokkinn, framboð leikarans Jóns Gnarr sem sigraði í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík árið 2010.
    Skortur er á listfræðilegum heimildum um verk Snorra og þá sérstaklega um pólitísk framboð hans sem og framboð til forsetaembættis. Helstu heimildir um verk hans eru umfjöllun og gagnrýni í fjölmiðlum. Einnig er stuðst við viðtal höfundar við listamanninn um framboðin.

Samþykkt: 
  • 20.1.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7382


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
HIldur Jörundsdóttir.pdf331.32 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna