Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/738
Tilgangur verkefnisins er að athuga hvort marktækur munur sé á hreyfiþroska barna á leikskólum sem hafa útivist sem markvissann þátt í starfi sínu og á leikskólum sem hafa það ekki. Hreyfiþroski var kannaður á börnum fæddum 2001 sem eru því á sjötta aldursári.
Farið er yfir helstu þætti sem hafa áhrif á hreyfifærni barns: hreyfiþroska, hreyfinám, hreyfivanda, hreyfistjórnun, þróun líkamans og fleira. Talað er um hreyfingu og leik barna á leikskólum og útivist á leikskólum. Einnig er farið yfir rannsóknaraðferð, hreyfiþroskaprófið og aðferðafræði rannsókna.
35 börn frá tveimur leikskólum sem starfa eftir ólíkum markmiðum, tóku þátt í rannsókninni. Við notuðum MOT 4-6 hreyfiþroskapróf til að mæla hreyfiþroska barnanna.
Við könnuðum hvort marktækur munur væri á hreyfiþroska þessara tveggja leikskóla en það reyndist ekki vera (p = 0,570).
Við völdum þetta viðfangsefni til að kanna hvort grundvöllur væri fyrir því að gera útivist að markvissari þætti í leikskólastarfi en við teljum mikilvægt að börnin komist í snertingu við náttúruna með aukinni útivist.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð.pdf | 663.38 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Fylgiskjal 1.pdf | 68.58 kB | Opinn | Fylgiskjal 1 | Skoða/Opna | |
Fylgiskjal 2.pdf | 112.23 kB | Opinn | Fylgiskjal 2 | Skoða/Opna | |
Fylgiskjal 3.pdf | 32.57 kB | Opinn | Fylgiskjal 3 | Skoða/Opna | |
Hreyfiþroskapróf.pdf | 284.36 kB | Opinn | Hreyfiþroskapróf | Skoða/Opna | |
Úrvinnslublöð.pdf | 51.79 kB | Opinn | Úrvinnslublöð | Skoða/Opna | |
Útdráttur.pdf | 37.09 kB | Opinn | Útdráttur | Skoða/Opna | |
Þakkir.pdf | 27.61 kB | Opinn | Þakkir | Skoða/Opna |