Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7392
Áreiti sem vekja tilfinningaleg viðbrögð hafa það í för með sér að athyglin verður upptekin af áreitinu jafnvel eftir að það er horfið af sjónarsviði. Fyrirbærið kallast tilfinningabundin blinda (emotion-induced blindness) og nafnið er tilkomið vegna þess að önnur áreiti sem birtast í kjölfar áreitisins, sem vakti tilfinningalegu viðbrögðin, geta farið framhjá sjáandanum. Hér var leitast við svara hvort ýfing ætti sér stað í kjölfar ógeðfelldra mynda þrátt fyrir tilfinningabundna blindu. Ýfing á áreiti sem fylgir í kjölfar ógeðfelldra mynda á sér stað ef áreiti sem birtist á eftir ógeðfelldu myndinni birtist endurtekið í sama lit og kemur fram í styttri svartíma réttra svara. Einnig var kannað hvort ýfing ætti sér frekar stað á rauðu en grænu markáreiti í kjölfar ógeðfelldra mynda í samanburði við hlutlausar myndir og mynda á hvolfi. Nýlegar litarannsóknir hafa sýnt fram á að þátttakendur tengja merkingu rauðs litar við hættu. Niðurstöður sýndu að ýfing kom fram í kjölfar ógeðfelldra mynda og eingöngu varð ýfing á rauðu áreiti.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BS Sunna.pdf | 1.48 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |