is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7394

Titill: 
  • Sjálfstæði Nýja-Íslands. Sjálfstæðishugsun íslenskra innflytjenda í Ameríku á 19. öld
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er um sjálfstæði Nýja-Íslands í Kanada á 19. öld. Í ritgerðinni er fjallað ítarlega um innihald sendibréfa, sem íslenskir innflytjendur sendu til Íslands eða sín á milli í N-Ameríku. Efnisafmörkun þessarar ritgerðar tekur mið af sjálfstæðishugsun íslenskra innflytjenda í Ameríku á 8. áratug 19. aldar, þar sem persónulegar heimildir leika stórt hlutverk. Lögð er áhersla á að gera greinarmun á eðli heimilda og hvernig þær hafa áhrif á þá sögu sem þær eru að segja. Ritgerðin greinir frá hugmyndum íslenskra vesturfara um nokkra atburði og ýmis hugtök eins og þjóðerni og sjálfstæði.
    Meginmarkmið rannsóknarinnar er að kanna hugmyndina um sjálfstæði Nýja-Íslands, hvort hún eigi sér einhverja stoð í samtímaheimildum og hvaða tilgangi hún þjónar í sögu Vestur-Íslendinga og afkomenda þeirra. Með það að leiðarljósi liggja fyrir nokkrar grundvallarspurningar sem krefjast svara: Hvers konar sjálfstæðishugsun birtist í frumheimildum íslensku vesturfaranna? Höfðu íslenskir vesturfarar einhver áform um að stofna fullvalda ríki? Ef ekki, hvaðan kemur þá hugmyndin um sjálfstæði Nýja-Íslands?

Samþykkt: 
  • 21.1.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7394


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MAritgerd_lokagerd_olafurarnar_Sjalfstædi Nyja-Islands.pdf740.75 kBLokaðurHeildartextiPDF