Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7421
Hegðunarvandamál í skólum kalla á úrræði til þess að ná stjórn á ástandinu. Stuðningur við jákvæða hegðun er kerfi sem miðar að því að koma í veg fyrir og draga úr óæskilegri hegðun meðal nemenda. Kerfið byggist á því að tekið sé eftir æskilegri hegðun og umbunað fyrir hana og starfsfólki kennt viðeigandi inngrip í óæskilegri hegðun. Beinar áhorfsmælingar í þremur grunnskólum í Reykjanesbæ hafa staðið yfir frá árinu 2007 þar sem grunnlínumælingar hófust en nú er inngrip hafið í öllum skólunum. Mælingar sem sagt er frá hér fóru fram haustið 2009 eftir að innleiðing PBS kerfisins var hafin í öllum skólunum. Niðurstöðurnar gefa til kynna að innleiðing kerfisins sé að skila árangri.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
johannahildur_BSritgerd.pdf | 1.12 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |