Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/744
Í þessari rannsóknarritgerð var líkamlegt atgervi handboltamanna í efstu deild á Íslandi kannað. Leikmenn meistaraflokks Fram tóku þátt í rannsókninni og þreyttu þeir þrjú próf tvisvar sinnum. Prófin fóru fram í byrjun undirbúningstímabils II og aftur 11 vikum síðar. Alls tóku 16 þátttakendur þátt í prófunum en níu þeirra tóku öll prófin þrjú tvisvar sinnum , þess vegna er rannsóknin miðuð við þá. Leikmennirnir eru á aldrinum 18-30 ára.
Prófin sem leikmennirnir tóku þátt í voru Yo-yo ósamfellt þolpróf, 20m hraðapróf og Sargent’s uppstökkspróf.
Í þolprófinu bættu leikmenn hlaupalengd sína um 98m milli mælinga. Marktækur munur var milli mælinganna tveggja (p=0,01) Sex leikmenn bættu sig í seinni mælingu og einn stóð í stað.
Í hraðaprófinu bættu leikmenn tíma sinn um 0,04 sek. Milli mælinga. Marktækur munur var á milli mælinganna tveggja (p=0,05) Sjö leikmenn bættu sig í seinni mælingu.
Í uppstökksprófinu bættu leikmenn stökkhæð sína um 1,33cm milli mælinga. Marktækur munur var á milli mælinganna tveggja (p=0,01) Sex leikmenn bættu sig í seinni mælingu og einn stóð í stað.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heildarskjal.pdf | 276.43 kB | Opinn | Ágrip | Skoða/Opna | |
Stefán Baldvin.pdf | 7.95 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |