is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7528

Titill: 
  • Utanríkisstefna Sýrlands. Hlutverk Líbanon í þeirri stefnu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari ritgerð er fjallað um utanríkisstefnu Sýrlands og hlutverk Líbanon í þeirri stefnu út frá raunsæis- og nýraunsæishyggjunni (e. realism og neorealism). Í ritgerðinni er leitast við að svara því hvort utanríkisstefnan frá myndun ríkisins og til dagsins í dag hafi byggt á þeim kenningum. Ritgerðin skiptist í fjóra meginkafla. Fjallað er um raunsæis- og nýraunsæiskenningar og þær tengdar við alþjóðakerfið í Mið-Austurlöndum. Enn fremur er fjallað um myndun ríkjanna tveggja, þ.e. Sýrlands og Líbanon út frá heimsvaldastefnu Frakka. Borgarastríðið í Líbanon er til umfjöllunar en átökin þar og endalok stríðsins höfðu mikil áhrif á samskipti Sýrlands og Líbanon. Einnig er stefna Sýrlands í utanríkismálumkrufin ásamt hlutverki og stöðu Líbanon í þeirri stefnu. Raunsæis- og nýraunsæishyggja hefur verið undirstaðan í þeirri stefnu en arabísk þjóðernishyggja (e. Arabism, og Pan-Arabism) hefur einnig verið nýtt sem tæki til að styrkja stöðu Sýrlands. Fjallað er sérstaklega um Hafez al-Asad, fyrrum forseti Sýrlands sem lést árið 2000. Hann var sá sem hafði mestu áhrif á utanríkisstefnu Sýrlands frá myndun hins sjálfstæða ríkis árið 1946. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú að utanríkisstefna landsins byggði að miklu leiti á raunsæis- og nýraunsæishyggjunni og var hlutverk Líbanon mikilvægt allt til ársins 2005 þegar sýrlenskir hermenn yfirgefa landið.
    Lykilorð: Stjórnmálafræði, Utanríkisstefna, Sýrland, Líbanon, Raunsæishyggja

Samþykkt: 
  • 7.2.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7528


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð.pdf330.66 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna