Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7571
Kannað var hversu góður árangur er af níu vikna hópmeðferð við litlu sjálfsáliti á göngudeild Landspítala. Þátttakendur voru 258, þar af 81% konur og 19% karlar og var vísað í meðferðina af fagfólki; heimilislæknum, geðlæknum eða sálfræðingum. Athugað var hvort breyting yrði á sjálfsáliti, lífsgæðum, þunglyndi og streitu í kjölfar meðferðar. Niðurstöður benda til þess að meðferðin hafi áhrif, og studdu þá tilgátu var að lífsgæði þeirra þátttakenda sem ljúka meðferð aukist, sjálfsálit hækki og að þunglyndis-, kvíða- og streitueinkenni minnki. Einnig var brottfall þátttakenda skoðað eftir lýðfræðilegum breytum og skorum á sálfræðilegum mælitækjum. Tveir þættir höfðu áhrif á það hvort fólk lauk meðferðinni eður ei. Þátttakendur sem skoruðu hátt á kvíðakvörðum voru líklegri til að ljúka ekki meðferð og ennfremur voru þeir sem notuðu áfengi eða vímuefni sem bjargráð líklegri til að flosna upp úr meðferð.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lilja Sif Þorsteinsdottir-RITGERÐ.pdf | 936.48 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |