Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7575
Frá efnahagshruninu á Íslandi í október 2008 hefur uppsögnum, bæði á einkamarkaði og hjá hinu opinbera fjölgað verulega. Nú liggur fyrir að skera þarf mikið niður hjá ríki og sveitarfélögum. Vaknaði áhugi hjá höfundi að kanna hvaða lög og reglur gilda um uppsagnir starfsmanna og skoða hvernig það lagaumhverfi sem gildir um opinbera starfsmenn er frábrugðið því sem gerist á hinum almenna vinnumarkaði þegar kemur að uppsögnum úr starfi.
Niðurstöður leiða í ljós að þegar kemur að uppsögnum njóta starfsmenn á opinberum vinnumarkaði ríkari vinnuverndar en starfsmenn á almennum vinnumarkaði. Á almennum vinnumarkiði er meginreglan sú að atvinnurekendur hefur frelsi til þess að
ráða og reka að vild. Á opinbera vinnumarkaðnum gilda hins vegar reglur stjórnsýsluréttarins og lög um opinbera starfsmenn sem setja forstöðumönnum opinberra stofnana ákveðnar skorður þegar kemur að uppsögnum ríkisstarfsmanna.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSritgerð_SMJ_Loka.pdf | 420.15 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |