ÍslenskaenEnglish

Aðilar að Skemmunni

Leit eftir:


LokaverkefniHáskóli Íslands>Menntavísindasvið >B.A./B.Ed./B.S. verkefni>

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/761

Titill

Lífssögurannsóknir

Útdráttur

Þessi ritgerð er unnin af tveimur þroskaþjálfanemum á lokaári á þroskaþjálfabraut í Kennaraháskóla Íslands. Fyrsti kafli ritgerðarinnar byggir annarsvegar á fræðilegri umfjöllun um fötlunarfræði þar sem fjallað er um hugmyndir kenndar við eðlilegt líf og fulla þátttöku eða normaliseringu eins og það er kallað, rakið er hvernig þróun fötlunarfræða átti sér stað í stuttu máli, sagt er frá læknisfræðilega líkaninu sem endurspeglar sjónarhorn læknis-fræðainnar, sagt er frá breska félagslega líkaninu sem er eitt það þekktasta og umdeildasta hinna félagslegu líkana, við fáu að kynnast ICF – Alþjóða flokkunarkerfinu um færni, fötlun og heilsu, sem samþættir tvö sjónarhorn það læknisfræðilega og félagslega, fjallað er um norræna tengslalíkanið þar sem farið er í hin samnorræna skilning á fötlun. Kaflanum er svo lokið meðumfjöllun um lífssögurannsóknir, hvaða sögur voru skrifaðar fyrst o.s.frv.
Í öðrum kafla ritgerðin er rannsóknaraðferðinni lýst, framkvæmd hennar og siðferðilegar vangaveltur sem komu upp á meðan vinnsla lífssagnanna stóð yfir.
Í þriðja kaflanum eru lífssögur tveggja alvarlega fatlaðra einstaklinga skoðaðar. Tilgangur ritgerðarinnar er að skoða hvernig lífssögur fólks með fötlun geta varpað ljósi á sögulega þróun þeirra og aðstæður. Líf og aðstæður tveggja alvarlega fatlaða einstaklinga verður skoðað í sögulegu samhengi. Jafnframt er saga þeirra skoðuð útfrá þróun fötlunarfræða.

Birting
3.9.2007


Skrár
NafnRaðanlegtStærðRaðanlegtAðgangurRaðanlegtLýsingRaðanlegtSkráartegund
Efnisyfirlit.pdf56,1KBOpinn Efnisyfirlit PDF Skoða/Opna
Fylgiskjöl 1-4.pdf57,6KBOpinn Fylgiskjöl 1-4 PDF Skoða/Opna
Heimildaskrá.pdf84,7KBOpinn Heimildaskrá PDF Skoða/Opna
Meginmál.pdf267KBLokaður Meginmál PDF  
Verkefni.pdf278KBLokaður Verkefni PDF  
Ágrip og formáli.pdf36,0KBOpinn Ágrip og formáli PDF Skoða/Opna
Úrdráttur.pdf42,1KBOpinn Úrdráttur PDF Skoða/Opna