Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/762
Meginviðfangsefni þessa lokaverkefnis til B.Ed.-gráðu er vinátta barna á leikskólaaldri og þróun hennar. Fjallað er um vináttu barna á leikskólaaldri út frá kenningum fræðimanna. Í ritgerðinni er að finna umfjöllun um þróun vináttu, félagsfærni og samskiptahæfni barna, kynjamun, áhrifaþætti samfélagsins og mikilvægi leiksins í vináttu. Til þess að fá betri innsýn í það hvernig leikskólakennarar og börn líta á vináttu voru tekin viðtöl við sex leikskólakennara og átta börn. Hægt var að sjá tengingu á milli þess sem leikskólakennarar og börnin sögðu og þess sem fræðimenn hafa rannsakað. Niðurstöður sýna að til þess að börn geti myndað vináttutengsl þurfa þau að búa yfir góðri samskipta- og félagshæfni. Nauðsynlegt er að leikskólar gefi börnum gott rými, næði og tíma fyrir leik þar sem hann er undirstaða í vináttutengslum barna. Einnig verða leikskólakennarar að virða vináttusambönd og gefa vinum tækifæri á að vera saman.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Vinir leika sér saman-heild.pdf | 561.63 kB | Lokaður | Heildar verkefni |