Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/763
Markmið ritgerðarinnar var að rannsaka hvort unnið væri markvisst með hreyfingu í útiveru barna í leikskólum. Fræðilegra heimilda var aflað og var útkomunni skilað í umfjöllun um hreyfiþroska og þróun hans, hreyfingu, útiveru og leiki. Rannsókn var gerð á fjórum leikskólum og var tilgangur hennar að sjá hvort markvisst væri unnið með hreyfingu á útisvæðum þessa leikskóla. L¬agður var spurningalisti fyrir starfsfólk leikskólanna, alls 51 starfsmann, og þar spurt ýmissa spurninga um viðhorf þess og skoðanir til útiveru og annars sem henni tengist. Þrjár athuganir voru gerðar á hverjum leikskóla á meðan á útiveru stóð. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að markvisst var unnið með hreyfingu í útiverunni á einum af þessum fjórum leikskólum. Þrátt fyrir það hefðu höfundar viljað sjá markvissari vinnu á þessum leikskóla og auðvitað á hinum leikskólunum sem voru ekki með neina markvissar hreyfistundir í útiverunni. Tilgangur ritgerðarinnar var að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi markvissar hreyfingar í útiveru.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Hvað ungur nemur - heild.pdf | 297.07 kB | Lokaður | Heildarverk |