Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7643
Verkefni þetta er rannsóknarverkefni og fjallar um steypu með íblönduðum basalttrefjum. Gerð er rannsókn á þremur steypublöndum, þ.e. einni án basalttrefja og síðan tveimur með mismiklu magni basalttrefja. Úr blöndunum eru gerð prófsýni sem síðan eru brennd/hituð í háhitaofni. Eftir bruna/hitunarprófin er sprungumyndun og litabreytingar skoðaðar og loks eru sýnin þrýstistyrksprófuð. Í skýrslunni er gerð skil á uppbyggingu steypu og fjallað um fylliefni og íblöndunarefni. Þá er einnig fjallað um erlendar brunarannsóknir og íblöndun ýmissa trefja í steypu til að bæta eiginleika hennar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Brunaprof steypu.pdf | 5.53 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |