Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/766
Þetta verkefni er vefverkefni hýst á vefsvæði KHÍ, http://lokaverkefni.khi.is/v2006/gukristj2/. Verkefnið hefur að geyma efni um tómstundir sem forvarnir og er áherslan á fólk eldra en 60 ára.
Í þessu verkefni er fjallað um mikilvægi tómstunda í forvarnarskyni og einnig er farið yfir hvað er í boði í tómstundastarfi í Reykjavík.
Vefnum er fyrst og fremst ætlað að vera upplýsinga- og fræðsluvefur fyrir eldri borgara en líka fyrir alla aðra sem tengjast málaflokknum á einhvern hátt og að sjálfsögðu alla sem áhuga eða gagn hafa af.
Með því að hafa tengla sem vísa í þetta efni, þ.e. tómstundir og ýmis málefni sem snúa að eldri borgurum, inni á heimasíðunni er vonast til þess að eldri borgarar notfæri sér síðuna til upplýsingaöflunar. Þess er vænst að þar lesi fólk um mikilvægi tómstunda í forvarnarskyni og mikilvægi þess að finna sér eitthvað ánægjulegt til að hafa fyrir stafni á efri árum.
Ekki er almennt í kerfinu nægilega markvisst unnið með tómstundir sem forvörn eða fólki bent á mikilvægi tómstunda. Heildarsýn og markmið vantar. Með tilkomu tómstundafræðinga verður vonandi unnið þrekvirki þessum málaflokki.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Greinargerð.pdf | 236.21 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Vefur.zip | 1.48 MB | Opinn | Vefur | Skoða/Opna |