Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7687
Í ritgerðinni er fjallað um þroskastig barna og ungmenna og hvernig þekking á mismunandi þroskastigum nýtist leiðtogum og öðrum sem skipuleggja félagsstarf fyrir börn og ungmenni. Skipulag barna- og unglingastarf þjóðkirkjunnar er skoðað og tillögur lagðar fram vegna uppbyggingar fyrir Bessastaðasókn. Hlutverk leiðtoga í barna- og unglingastarfi er sérstaklega skoðað og samspil leiðtoga við starfsfólk í félagsstarfi fyrir börn og unglinga. Fjallað er um þau gildi sem þarf að hafa í hávegum í slíku starfi og sérstaklega skoðaðar þau heilræði sem þjóðkirkjan ætlast til að farið sé eftir í félagsstarfi ungmenna á hennar vegum. Í fræðilega hluta ritgerðarinnar er einkum litið til kenninga Piaget og Erikson um þroskaskeið barna og unglinga og komið fram með tillögur um skiptingu í samræmi við félagsstarfið í Bessastaðasókn. Einnig er tekið mið af efni eftir Bull og fleiri höfunda sem fjalla sérstaklega um ýmsa þætti í félagsstarfi með börnum og ungmennum út frá ýmsum hliðum, styrkleika, veikleika og möguleika í slíku starfi, ekki síst út frá sjónarmiði leiðtoga sem leiða slíkt starf. Í viðauka er að finna siðareglur og heilræði sem notuð eru í félagsstarfi ungmenna innan þjóðkirkjunnar, en vísað er til þess efnis í meginmáli ritgerðarinnar og þetta bakgrunnsefni tengist þeim hugmyndum sem settar eru fram í henni
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð, Jóhanna Aradóttir.pdf | 602.69 kB | Lokaður | Heildartexti |