Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7688
Tilgangur þessa verkefnis er að fjalla um AD(H)D og konur. Mikil umræða hefur verið í þjóðfélaginu um AD(H)D og misnotkun lyfja við röskuninni en minna hefur verið rætt um afleiðingar þess ef ekki er farið í greiningu.
Stelpur hafa oft á tíðum öðruvísi einkenni heldur en strákar þegar kemur að einkennum AD(H)D og er tilgangur þessa verkefnis að taka viðtöl við sex konur á aldrinum 18-65 ára og skoða líðan þeirra fyrir greiningu, hvaða breytingar urðu við að fá greiningu og hvort að tómstundaiðkun þeirra hafi breyst í kjölfarið á greiningunni.
Með því að skoða einkenni AD(H)D og líðan fólks við að fara inn í fullorðinsárin jafnvel með ógreint AD(H)D þá tel ég að við öflum okkur meiri vitneskju um líðan stelpna sem ekki hafa farið í greiningu og gerum okkur grein fyrir nauðsyn þess að meðhöndla einstaklingana og fylgiraskanir sem ég fjalla einnig um.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð AD(H)D og konur.pdf | 424.56 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |