Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/772
Enginn kennir það öðrum er ei kann sjálfur : umfjöllun um stærðfræðikennslu og niðurstöður úr rannsókn á kennsluaðferðum kennara á mið- og unglingastigi
Rannsókn þessi fjallar um kennsluaðferðir stærðfræðikennara á mið- og unglingastigi. Rannsóknin var framkvæmd með megindlegri aðferð og var úrtakið 142 kennarar úr 21 grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu. Spurningarlistar voru afhentir með tvennum hætti, annarsvegar á rafrænu formi og hinsvegar afhentir í skólana. 54 kennarar tóku þátt. Markmiðið með rannsókninni var að kanna hvernig kennarar á mið- og unglingastigi kenna og athuga hvort munur væri á kennsluaðferðum þeirra eftir aldri, starfsreynslu og menntun í stærðfræði og stærðfræðikennslu. Rannsókn okkar gefur afdráttalausa niðurstöðu. Hún er sú að kennarar, óháð aldri, starfsreynslu þeirra og menntun, kjósa að nota kennsluaðferðina einstaklingsvinna mest í stærðfræðikennslu sinni. Þeir nota aðferðina vegna þess að þeir telja hana bera árangur í kennslu. Áður en fjallað er um rannsóknina gerum við grein fyrir nýjum rannsóknum á árangursríkum kennsluaðferðum í stærðfræði. Af þeim má ráða að niðurstaða rannsóknar okkar er ekki í samræmi við þær kennsluaðferðir sem fræðimenn telji að beri árangur í stærðfræðikennslu.
Nafn![]() | Stærð![]() | Aðgangur![]() | Lýsing![]() | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Fylgiskjal_Spurnin... .pdf | 93,5KB | Opinn | Fylgiskjal spurningalisti | Skoða/Opna | |
| Kapa.pdf | 46,8KB | Opinn | Kápa | Skoða/Opna | |
| Lokaverkefni.pdf | 807KB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
| Titilsida.pdf | 23,4KB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |