is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Félagsvísindadeild > Meistarverkefni í félagsvísindadeild (MA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7790

Titill: 
  • Hlutverk háskóla í samfélagi : menntun til sjálfbærrar þróunar
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Tilgangur þessarar rannsóknar er að meta hvort háskólar gegni ábyrgðarhlutverki gagnvart samfélagi til að mennta til sjálfbærrar þróunar. Rannsóknin tekur mið af því að áratugurinn 2005-2014 er Áratugur menntunar til sjálfbærrar þróunar af hálfu Sameinuðu þjóðanna.
    Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt; að greina og skilja þann vanda sem fylgir notkun hugtaksins sjálfbær þróun og að meta hvort háskólar gegni hlutverki fyrimyndar í samfélagi á sviði menntunar til sjálfbærrar þróunar. Rannsóknin er eigindleg viðtalsrannsókn og er afstaða sérfræðinga í fræðasamfélaginu
    könnuð til ofangreindra þátta. Að auki var fræðileg orðræða greind og borin saman við viðtalsgreiningu og kenningargrunn. Viðtölin voru hálfopin og unnin samkvæmt reglum eigndlegrar aðferðarfræði. Eftirfarandi kemur fram í niðurstöðum:
     Að hugtakið sjálfbær þróun sé í raun „hálfkarað“ orðfæri í íslenskri tungu. Umræðan takmarkist að verulegu leyti við umhverfisþátt hugtaksins en virðist ekki hafa verið
    útfært yfir á hinar stoðirnar tvær (efnahags- og félagsstoðina) nema að litlu leyti.
     Að lítil áhersla sé á menntun til sjálfbærrar þróunar innan háskóla á Íslandi.
     Að háskólar gegni ótvíræðu hlutverki í samfélagi:
     Sem fyrirmynd verklags sjálfbærrar þróunar
     Sem rödd gagnrýni á ríkjandi gildi í samfélagi
     Að miðla til upplýsingum til samfélagsins

Samþykkt: 
  • 28.3.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7790


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sigrún-loka-prent.pdf1.27 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna