is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Lagadeild > Lokaverkefni í lagadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7791

Titill: 
  • Synjunarvald forseta Íslands
  • Titill er á ensku The Icelandic Presidential Veto
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Allt frá því að stjórnarskrá Íslands tók gildi hafa verið deildar meiningar um hvert sé stjórnskipulegt hlutverk forsetans. Sér í lagi hafa mikil orðaskipti átt sér stað um ákvæði 26. greinar stjórnarskrárinnar um synjunarvald hans. Samkvæmt orðanna hljóðan er ákvæðið skýrt auk þess sem greinagerð með lögum greinir skýlaust frá því að forsetinn geti synjað lögum staðfestingar. Í ritgerðinni verður farið yfir stjórnskipan Íslands, hver séu völd og hlutverk forsetans í stjórnskipunarrétti þar sem ákvæði 26. gr. stjórnarskrárinnar um synjunarvald forseta verður gerð ítarleg skil. Þá verður farið yfir söguleg atvik er snúa að því þegar kom til álita að beita synjunarvaldi í tíð fr. Vigdísar Finnbogadóttur og þegar því var beitt í tíð hr. Ólafs Ragnar Grímssonar. Að endingu verður rýnt í skrif fræðimanna um túlkun þeirra á því hvert eiginlegt inntak 26. greinarinnar sé að teknu tilliti til annarra ákvæða stjórnarskrárinnar sem kveða á um hlutverk og völd forseta.

Samþykkt: 
  • 28.3.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7791


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
B Sc _AndriThorArnason.pdf443.66 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna