is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Ráðstefnurit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7814

Titill: 
  • Komið til móts við fjölbreytileika : fullorðinsfræðsla fyrir innflytjendur og samþætting
Útgáfa: 
  • Desember 2010
Útdráttur: 
  • Í greininni er fjallað um fullorðinsfræðslu fyrir innflytjendur og hlutverk hennar í aðlögun innflytjenda að íslensku samfélagi. Sjónum er sérstaklega beint að samþættingarferlum og hvaða hlutverki fræðsla gegnir í því að veita fólki aðild og auðvelda þátttöku þess í samfélaginu. Samþætting lýsir tvíhliða ferli þar sem bæði innflytjendur og móttökuland taka þátt í aðlögunarferlinu. Í greininni er skoðað hvernig fræðsla fyrir fullorðna innflytjendur getur gagnast í þeirri samræðu og þeim samskiptum sem í samþættingu felst. Markmið umfjöllunar okkar er að sýna hvernig mótun fjölmenningarlegs samfélags með samþættingu á sér stað á Íslandi. Til að varpa ljósi á þá mótun beinum við sjónum okkar að sviði fullorðinsfræðslu. Fjallað er um stefnu stjórnvalda í fræðslu innflytjenda, markmið og framkvæmd hennar. Hverskonar námskeið eru í boði og hvað ræður framboðinu? Hverjar eru væntingar og reynsla námskeiðshaldara og þátttakenda á námskeiðum til námsframboðs og námskeiða? Hvaða strauma má greina í stefnu stjórnvalda, framboði námskeiða og framkvæmd þeirra varðandi samþættingu og mögulega aðild innflytjenda að samfélaginu sem virkir þátttakendur?

  • Útdráttur er á ensku

    This article deals with the role of education for adult immigrants in their adaptation to Icelandic society. The main focus is on integration and the role of courses in enhancing immigrants’ access to the society and their chances of participation in daily life. Adult education for immigrants is an important part of the integration process as it is an important aspect for the develop-ment of future possibilities of people’s participation and coexistence. The aim of this article is to examine how, in the case of Iceland, a multicultural society is constructed, by taking a look at one important aspect the field of adult education. We examine the state policies regarding education for immigrants and their goals and how they are put into practice. What types of courses are available and what governs which courses are taught? What are the expectations of organizers, teachers and participants towards these courses? Unnur Dís Skaptadóttir is a professor in anthropology at the University of Iceland and Helga Ólafsdóttir is a graduate student in anthropology at the University of Iceland.

Athugasemdir: 
  • Ráðstefnurit Netlu
Samþykkt: 
  • 31.3.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7814


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
024.pdf250.21 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna