is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/783

Titill: 
  • Vinnuþrælkun barna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Vinnuþrælkun barna er útbreitt vandamál í heiminum í dag, sérstaklega í hinum
    vanþróuðu ríkjum Afríku, Asíu og Mið- og Suður Ameríku. Hin þróuðu iðnríki fara þó
    ekki varhluta af þessu vandamáli. Samkvæmt tölum frá Alþjóðavinnumálastofnuninni (
    skammstöfun ILO) sem birtust 2006, áætlaði hún að fjöldi vinnandi barna árið 2004 hefði
    verið um 218 milljónir og að meira en 60% af þessum börnum væru hneppt í
    vinnuþrælkun af verstu gerð. Á síðastliðnum tveim áratugum hefur orðið mikil
    vitundarvakning og athygli alþjóðasamfélagsins beinist nú í auknum mæli að þessu
    vandamáli sem hefur verið látið afskiptalaust allt of lengi. Það er gríðarlega
    umfangsmikið og margir samfélagslegir þættir eru fléttaðir saman, m.a. fátækt,
    menntunarskortur, splundrun fjölskyldna og veikindi foreldra. Á alla þessa þætti verður
    því að ráðast. Börn, allt niður í 5 ára gömul eru send út á vinnumarkaðinn vegna mikillar
    fátæktar og oft er um munaðarlaus börn að ræða. Aðildarríki ILO gerðu með sér sáttmála
    um tafarlausar aðgerðir gegn og bann við, vinnuþrælkun barna af verstu gerð sem kom út
    árið 1999 og nefnist C182 Worst Forms of Child Labour Convention, 1999. Sérstök
    áætlun um hvernig sáttmálanum skuli framfylgt, sem nefnist R190 Worst Forms of Child
    Labour Recommendations, 1999, var einnig gefin út. Í sáttmálanum kemur fram hvaða
    tegund atvinnu telst hættuleg börnum samkvæmt ILO. Með staðfestingu sáttmálans,
    skuldbinda ríkin sig til að hefjast tafarlaust handa við að koma í veg fyrir og útrýma
    vinnuþrælkun barna í sinni verstu mynd. Ritgerð þessi fjallar um þetta vandamál almennt
    og verður leitast við að varpar ljósi á þau alþjóðalög, sáttmála og yfirlýsingar sem varða
    efnið.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/783


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit.pdf144.77 kBOpinnVinnuþrælkun - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Endanlegt útlit.pdf538.44 kBTakmarkaðurVinnuþrælkun - heildPDF
Heimildaskrá.pdf140.26 kBOpinnVinnuþrælkun - heimildaskráPDFSkoða/Opna
útdráttur.pdf63.69 kBOpinnVinnuþrælkun - útdrátturPDFSkoða/Opna