is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7846

Titill: 
  • Symptoms and quality of life. A cross-sectional, descriptive correlation study, evaluating the relationship between symptoms and quality of life in patients on opioids with advanced cancer
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Bakgrunnur: Sjúklingar með krabbamein finna fyrir mörgum einkennum
    sem hafa áhrif á lífsgæði þeirra. Krabbameinstengd einkenni orsakast ýmist af sjúkdómnum sjálfum eða meðferð hans, en þættir eins og aldur, kyn og aðrir sjúkdómar geta einnig haft áhrif á einkennamyndina. Einkenna-lífsgæðamódelið sýnir tengslin milli einkenna og lífsgæða hjá sjúklingum með krabbamein.
    Tilgangur verkefnis: Að skoða hugtakið lífsgæði og einkennamynd
    krabbameinssjúklinga, að setja fram módel til að lýsa tengslunum milli einkenna og lífsgæða og að prófa ákveðna þætti módelsins.
    Þátttakendur: 150 krabbameinssjúklingar á ópíoíðum. Karlar voru 62
    talsins (41%) en konur 88 (59%). Allir þátttakendur voru hvítir. Aldur þátttakenda var á bilinu 20-92 ár en meðalaldur (SF) var 64,7 (12,7) ár.
    Rannsóknarnið: Lýsandi, þversniðs, fylgnirannsóknarsnið.
    Niðurstöður: Meðalfjöldi (SF) einkenna síðasta sólarhringinn var 6,2 (2,5) en 9,0 (3,3) síðastliðna viku. Algengustu einkenni voru þreyta, verkir og slappleiki. Meðalstyrkur (SF) einkenna var 0,7 (0,4) síðasta sólarhringinn en 0,9 (0,5) síðastliðna viku á skalanum 0-3. Fjöldi einkenna, styrkur þeirra og heilsu/lífsgæðaskor var ekki tengt kyni eða tilvist annarra
    sjúkdóma. Fjöldi einkenna og styrkur einkenna minnkaði hins vegar með hækkandi aldri þótt heilsu/lífsgæðaskor væri óháð aldri. Fjöldi einkenna skýrði 25,8% af dreifingunni í heilsu/lífsgæðum þegar leiðrétt hafði verið fyrir aldri og kyni. Annað aðhvarfsgreiningarmódel, einnig leiðrétt fyrir aldri og kyni, sýndi að verkir, þreyta, svefnleysi og depurð skýrðu 33,6%
    af drefingunni í heilsu/lífsgæðum.
    Ályktanir: Einkennamynd íslenskra krabbameinssjúklinga á ópíoíðum
    svipar til krabbameinssjúklinga í öðrum löndum. Fjöldi einkenna sem og verkir, og einkum þreyta, eru tengd skertum lífsgæðum. Á óvart kom að svefnleysi og depurð höfðu ekki marktæk áhrif í
    aðhvarfsgreiningarmódeli. Niðurstöðurnar benda til þess að hægt sé að stuðla að bættum lífsgæðum krabbameinssjúklinga með því að meta og meðhöndla krabbameinstengd einkenni.
    Lykilorð: einkenni, lífsgæði, krabbamein.

  • Útdráttur er á ensku

    Background: Cancer patients experience multiple symptoms that affect
    their quality of life (QOL). Cancer related symptoms may be caused by
    the disease itself or its treatment, but factors like age, gender, and
    concurrent diseases may also influence the symptomatology. The
    symptoms-quality of life model shows the relationship between symptoms
    and QOL in cancer patients.
    Goal of project: To review the literature on quality of life and
    symptomatology among cancer patients, to pull together a model that
    explains the relationship between symptoms and quality of life and to test
    selected aspects of the model.
    Participants: 150 cancer patients on opioids, 62 (41%) men and 88 (59%)
    women, all Caucasians. The patients ranged in age from 20-92 years with
    a mean (SD) age of 64,7 (12,7) years.
    Research design: Descriptive, cross-sectional, and correlational.
    Results: The mean (SD) number of symptoms in the past 24 hours was 6,2
    (2,5), and 9,0 (3,3) in the past week. The most common symptoms were
    fatigue, pain, and weakness. Mean (SD) symptom severity was 0,7 (0,4) in the past 24 hours and 0,9 (0,5) in the past week on a scale from 0-3.
    Gender and concurrent diseases were not related to number of symptoms,
    symptom severity or QOL, but increased age was associated with fewer
    symptoms and less symptom severity although age difference was not
    found for global health/QOL score. Adjusted for age and gender, number
    of symptoms explained 25,8% of the variance in global health/QOL. Also
    adjusting for age and gender, pain, fatigue, insomnia, and depression
    explained 33,6% of the variance in global health/QOL.
    Conclusions: The symptomatology of Icelandic cancer patients is similar
    to cancer patients in other countries. Number of symptoms and the
    individual symptoms of pain and notably fatigue are associated with
    diminished QOL. Surprisingly insomnia and depression did not add
    significantly to the regression model. These results indicate that QOL of
    cancer patients may be improved by assessing and treating cancer related
    symptoms.
    Key words: symptoms, quality of life, cancer.

Samþykkt: 
  • 4.4.2011
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/7846


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sigridur_Zoega.pdf1.78 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna