Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/7901
Nauðgun er eitt af alvarlegustu brotum kynferðisbrotakafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940.
Í ritgerðinni er farið yfir sögu nauðgunarákvæðisins, allt aftur til þjóðveldisaldar og fram til núgildandi ákvæðis. Farið er yfir hvernig viðurlög við nauðgun hafa þróast og hvernig verknaðaraðferðum ákvæðisins var breytt í tímanna rás og þá einna helst breytingarnar sem gerðar voru á lögunum árin 1992 og 2007.
Farið er yfir verknaðaraðferðirnar þrjár sem fram koma í 1. mgr. 194. gr. en þær eru ofbeldi, hótanir og ólögmæt nauðung. Gerð er grein fyrir því hvaða háttsemi felst í þessum aðferðum.
Í ritgerðinni er ofbeldishugtak 1. mgr. 194. gr. hgl. skýrt ítarlega og leitast er eftir að gera grein fyrir því hvaða háttsemi felst annars vegar í ofbeldi í þrengri merkingu og hins vegar í rýmri merkingu.
Einnig er gerð grein fyrir því hvenær 1. mgr. 194. gr. tæmir sök gagnvart 217. gr. hgl. og hvenær ekki. Reynt er að leitast eftir mörkum á milli 217. gr. og 1. mgr. 194. gr. hgl. og reynt að finna út hver neðri mörk síðarnefnda ákvæðisins eru.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ofbeldishugtak 1. mgr. 194. gr. l. nr. 19:1940 - ThelmaThorbjorgSigurdardottir.pdf | 243.09 kB | Lokaður | Heildartexti |